skilmálar
Skilmálar og skilyrði fyrir ljósmyndatöku
Skilmálar þessir gilda milli Bless Studio (hér eftir „Ljósmyndari“) og viðskiptavinar (hér eftir „Viðskiptavinur“).
1. Bókun og staðfesting
1.1 Myndataka telst staðfest þegar Viðskiptavinur hefur samþykkt þessa skilmála og gengið frá greiðslu samkvæmt bókun.
1.2 Við staðfestingu er umsaminn dagur og tími frátekinn fyrir Viðskiptavin.
1.3 Allar breytingar á dagsetningu, tíma eða staðsetningu skulu vera samþykktar skriflega af báðum aðilum.
2. Greiðslur og gjöld
2.1 Verð myndatöku fer eftir þeim pakka sem valinn er við bókun.
2.2 Greiðslur skulu inntar af hendi samkvæmt þeim skilmálum sem fram koma í bókunarkerfi eða á reikningi.
2.3 Berist greiðsla ekki á tilsettum tíma áskilur Ljósmyndari sér rétt til að fella bókun úr gildi.
3. Afturköllun og breyting á bókun
3.1 Afturköllun bókunar skal berast skriflega með tölvupósti eða í gegnum bókunarkerfi.
3.2 Ef Viðskiptavinur afbókar með minna en 48 klukkustunda fyrirvara áskilur Ljósmyndari sér rétt til að innheimta 15.000 kr. no-show gjald.
3.3 Geti Ljósmyndari ekki sinnt myndatöku vegna aðstæðna sem hann hefur ekki stjórn á (svo sem veikinda, slysa eða óviðráðanlegra atvika) mun hann leitast við að bjóða nýjan tíma eða endurgreiða greitt gjald. Ábyrgð Ljósmyndara takmarkast við þá fjárhæð sem greidd hefur verið.
4. Afhending mynda
4.1 Samþykktur fjöldi fullunninna mynda verður afhentur í netgallerí innan 21 dags frá myndatöku.
4.2 Viðskiptavinur getur keypt viðbótarmyndir eða uppfært í fullt gallerí samkvæmt gildandi verðskrá.
4.3 Ljósmyndari hefur listrænt frelsi varðandi stíl, vinnslu, myndaval og staðsetningu, nema annað hafi verið sérstaklega samið um skriflega.
5. Höfundarréttur og notkun
5.1 Ljósmyndari heldur öllum höfundarrétti að myndum samkvæmt höfundalögum nr. 73/1972.
5.2 Viðskiptavinur fær óframseljanlegt leyfi til persónulegrar og óviðskiptalegrar notkunar á afhentum myndum, svo sem til prentunar og birtingar á eigin samfélagsmiðlum.
5.3 Óheimilt er að selja, breyta eða nýta myndir í viðskiptalegum tilgangi nema með skriflegu samþykki Ljósmyndara.
5.4 Ljósmyndari áskilur sér rétt til að nýta myndir í kynningar- og markaðsskyni (t.d. á vefsíðu, samfélagsmiðlum eða í prentefni), nema Viðskiptavinur óski sérstaklega eftir trúnaði fyrir afhendingu mynda.
5.5 Óski Viðskiptavinur eftir að tilteknar myndir verði ekki birtar skal það tilgreint skriflega eða munnlega til Ljósmyndara áður en lokagallerí er afhent.
6. Myndir af ólögráða einstaklingum
Ef myndir innihalda ólögráða einstaklinga staðfestir Viðskiptavinur, sem foreldri eða forráðamaður, að hann hafi heimild til að samþykkja þessa skilmála fyrir þeirra hönd.
7. Ábyrgð og takmarkanir
7.1 Ljósmyndari ber ekki ábyrgð á forföææi,sem ekki næst vegna aðstæðna utan hans stjórnunar, þar á meðal vegna seinkunar Viðskiptavinar, veðurs, aðstæðna á staðnum eða truflana af hálfu þriðja aðila.
7.2 Komi upp tæknileg bilun, gagnatap eða önnur óviðráðanleg atvik takmarkast ábyrgð Ljósmyndara við endurgreiðslu þess gjalds sem greitt hefur verið.
8. Ferðakostnaður og staðsetning
8.1 Fari myndataka fram utan hefðbundins starfssvæðis Ljósmyndara getur ferðakostnaður bæst við samkvæmt samkomulagi.
8.2 Viðskiptavinur ber ábyrgð á að heimilt sé að taka ljósmyndir á valinni staðsetningu og að farið sé að gildandi reglum.
9. Skyldur Viðskiptavinar
9.1 Viðskiptavinur skal mæta á réttum tíma. Seinkun leiðir ekki til framlengingar á fyrirfram ákveðnum tíma myndatöku.
9.2 Viðskiptavinur ber ábyrgð á að allir þátttakendur séu mættir og tilbúnir þegar myndataka hefst.
10. Geymsla gagna og aðgengi að galleríi
10.1 Netgallerí er aðgengilegt í 7 daga frá afhendingu.
10.2 Ljósmyndari er ekki skuldbundinn til að geyma hráar eða óunnar skrár nema sérstaklega hafi verið samið um það.
11. Lög og varnarþing
11.1 Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum.
11.2 Komi upp ágreiningur skulu aðilar leitast við að leysa hann með samkomulagi. Takist það ekki skal málið rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
no-show skilmálar
Með því að bóka tíma hjá Bless Studio samþykkir Viðskiptavinur að mæta á umsamin tíma.
Ef Viðskiptavinur mætir ekki eða afbókar með minna en 48 klukkustunda fyrirvara áskilur Bless Studio sér rétt til að innheimta 15.000 kr. no-show gjald.
Enginn kostnaður fellur til ef afbókun berst með meira en 24 klukkustunda fyrirvara.
Með því að staðfesta bókun samþykkir Viðskiptavinur þessa skilmála.